Fara beint í Meginmál

Einföldun fjármálaeftirlits rædd á málstofu vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu 30. október 2026

Björk Sigurgísladóttir (t.v.) og Guðrún Finnborg Þórðardóttir (t.h.)
Björk Sigurgísladóttir (t.v.) og Guðrún Finnborg Þórðardóttir (t.h.)

Björk Sigurgísladóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Guðrún Finnborg Þórðardóttir, verkefnastjóri í Seðlabankanum, fluttu erindi á málstofu vinnuhóps EFTA um fjármálaþjónustu þar sem fjallað var um einföldun fjármálaeftirlits og leiðir til að bæta aðgengi að upplýsingum um regluverk á fjármálamarkaði.

Björk fjallaði um nálgun Seðlabanka Íslands að einföldun í fjármálaeftirliti og þau verkefni sem ráðist hefur verið í. Markmiðið er að draga úr flækjustigi regluverks og eftirlits og auka skilvirkni, án þess að það komi niður á viðnámsþrótti fjármálakerfisins eða vernd neytenda og fjárfesta.

Guðrún Finnborg fjallaði um aðgerðir Seðlabankans til að auðvelda aðgengi að upplýsingum um löggjöf og eftirlitsframkvæmd. Meðal þeirra eru öflugri leitarvél á heimasíðunni fyrir löggjöf og tengd málefni, sérstakar síður um nýja og væntanlega löggjöf, fræðslufundir og áhersluverkefni um spurningar og svör. Einnig var kynnt notkun á gervigreind við vöktun á þróun löggjafar á fjármálamarkaði.

Í erindi sínu sagði Björk meðal annars: „Einföldun er ekki tímabundið verkefni heldur krefst hún stöðugrar athygli og eftirfylgni.”

Glærur sem Björk og Guðrún studdust við í erindum sínum eru hér í meðfylgjandi skjali:

Simplifying financial supervsion -  Enhancing access to information on financial regulation