Einföldun við framkvæmd fjármálaeftirlits hefur undanfarin misseri verið ofarlega á baugi. Seðlabankinn hefur tekið virkan þátt í umræðunni um einföldun á vettvangi evrópsku eftirlitsstofnananna á fjármálamarkaði (EBA, ESMA og EIOPA), ásamt norrænu samstarfi.
Einföldun við framkvæmd fjármálaeftirlits er hluti af uppfærðri stefnu Seðlabankans í fjármálaeftirliti frá upphafi árs 2026. Í stefnunni er kveðið á um að leita skuli leiða til aukinnar skilvirkni og betri nýtingar mannauðs og fjármagns, án þess að það veiki eftirlit eða dregið sé úr kröfum.
Unnið er að einföldun á ýmsum sviðum, meðal annars hvað varðar gagnaskil, stór eftirlitsverkefni og regluverk á ábyrgð Seðlabankans. Þá hafa leiðbeiningar á vefsíðu Seðlabankans verið endurskoðaðar og samræmdar með það að markmiði að auka skýrleika og draga úr tvíverknaði.
Hér eftir fer listi yfir aðgerðir til einföldunar sem hafa komið til framkvæmda frá því um mitt ár 2025 og eru á valdsviði Seðlabankans. Aðgerðirnar byggja á áhættumiðuðu mati og fela m.a. í sér fækkun reglubundinna gagnaskila þar sem tvíverknaður hefur verið til staðar, endurskoðun leiðbeininga og einföldun við framkvæmd fjáramálaeftirlits. Listinn verður uppfærður reglulega.
2026
2025
Síðast uppfært 25. september 2026