Fara beint í Meginmál

Rekstrarfélög verðbréfasjóða

Rekstrarfélög verðbréfasjóða starfa og heyra undir eftirlit Seðlabanka Íslands samkvæmt lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði. Með lögunum er tilskipun 2009/65/EB, eða svonefnd UCITS-tilskipun (e. Undertakings for Collective Investment in Transferable Securities), innleidd í íslenskan rétt, ásamt síðari breytingum. Lögin gilda um rekstrarfélög og rekstur og markaðssetningu verðbréfasjóða hér á landi.

Öðrum en rekstrarfélögum verðbréfasjóða er óheimilt að reka verðbréfasjóði.

Um umsókn um starfsleyfi rekstrarfélags fer samkvæmt II. og III. kafla laganna.

Starfsleyfi rekstrarfélags

Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða

Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða starfa og heyra undir eftirlit Seðlabanka Íslands samkvæmt lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Með lögunum er tilskipun 2011/61/ESB, eða svonefnd AIFM-tilskipun (e. Alternative Investment Fund Managers), innleidd í íslenskan rétt, ásamt síðari breytingum. Lögin gilda um rekstraraðila sem reka eða markaðssetja einn eða fleiri sérhæfða sjóði hér á landi eða í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Sérhver sérhæfður sjóður skal rekinn af rekstraraðila sérhæfðra sjóða, hvort sem rekstraraðilinn hefur hlotið til þess starfsleyfi eða skráningu.

Um umsókn um starfsleyfi og skráningu rekstraraðila fer samkvæmt II. og III. kafla laganna.

Starfsleyfi og skráning rekstraraðila

Öðrum en rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, sem hlotið hafa starfsleyfi Seðlabankans, er óheimilt að reka verðbréfasjóði eða sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta (áður fjárfestingarsjóðir). Þá er slíkum aðilum með starfsleyfi einum heimilt að markaðssetja verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta, enda hafi slíkir sjóðir verið staðfestir af Seðlabankanum.