Fara beint í Meginmál

Gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti skilaaðila í stundarviðskiptum eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 2026.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)

Gögnum um gjaldeyrisviðskipti er safnað í því skyni að fylgjast með veltu á gjaldeyrismarkaði.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin er á grundvelli reglna nr. 861/2022 um almenna tilkynningarskyldu skv. lögum um gjaldeyrismál, sem settar eru á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2021 um gjaldeyrismál.

Gjaldeyrisviðskipti

Hugtakið gjaldeyrisviðskipti vísar hér til allra gjaldeyrisviðskipta viðskiptabankanna í stundarviðskiptum þar sem íslenskri krónu er skipt fyrir erlendan gjaldmiðil.

Endurskoðun gagna

Gögn eru endurskoðuð komi fram leiðréttingar frá skilaaðilum.

Stundargjaldeyrisviðskipti

Stundargjaldeyrisviðskipti eru skilgreind sem viðskipti með tvo gjaldmiðla þar sem gengi er ákvarðað á viðskiptadegi og uppgjör fer fram eftir tvo eða færri daga.

Viðskiptavaki á millibankamarkaði með gjaldeyri

Viðskiptavakar á gjaldeyrismarkaði samkvæmt reglum nr. 600/2020 eru þrír; Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Önnur innlend fjármálafyrirtæki

Viðskipti allra innlendra fjármálafyrirtækja annarra en viðskiptavaka á millibankamarkaði, lífeyrissjóða og Seðlabanka Íslands. Viðskipti á milli Kviku banka og hinna viðskiptabankanna eru í þessum flokki þar sem Kvika er ekki viðskiptavaki samkvæmt reglum nr 600/2020.

Undir önnur innlend fjármálafyrirtæki í birtingu á gjaldeyrisviðskiptum falla:
• Innlánsstofnanir aðrar en viðskiptavakar
• Tryggingafélög
• Lánafyrirtæki
• Fjárfestingabankar
• Greiðslukortafyrirtæki
• Fjármögnunarleigur
• Verðbréfafyrirtæki
• Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

gjaldeyrisviðskipti
15. október
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - September 2026
gjaldeyrisviðskipti
16. nóvember
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Október 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
Bein fjárfestingÁrleg21. september202518. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
GreiðslumiðlunMánaðarleg17. septemberÁgúst 202616. októberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg17. septemberJúlí 202619. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. septemberÁgúst 202619. októberMarkaðir
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg15. septemberÁgúst 202615. októberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg9. septemberÁgúst9. októberGreiðslujöfnuður við útlönd
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. septemberÁgúst 20267. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
RaungengiMánaðarleg7. septemberÁgúst 20267. októberMarkaðir
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg7. september2. ársfjórðungur 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
LífeyrissjóðirMánaðarleg4. septemberJúlí 20267. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg3. septemberÁgúst 20265. októberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg3. septemberÁgúst 20265. októberMarkaðir
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg31. ágústJúlí 202629. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg31. ágústJúlí 202630. septemberMarkaðir
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. ágústJúlí 202628. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. ágústJúlí 202628. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. ágústJúlí 202628. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg25. ágústJúlí 202624. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja